Pétur Már Sigurðsson
Pétur Már er nýráðinn yfirþjálfari KFÍ og aðstoðarlandsliðsþjálfari A-landsliðs karla. Pétur spilaði með KFÍ og Borgarnesi við góðan orðstír áður en hann hélt á Laugarvatn til náms. Síðasta tímabil náði Pétur frábærum árangri hjá félaginu en undir hans stjórn sigraði meistaraflokkur karla 1. deildina, og vann sér sæti í Iceland Express deild karla, og lék í undanúrslitum bikarkeppninnar. Ekki var árangurinn síðri hjá meistaraflokki kvenna en þær náðu öðru sæti í 1. deild kvenna og léku til úrslita um sæti í efstu deild. Sannarlega eftirtektarverður árangur hjá Pétri sem stefnir á stóra hluti næsta tímabil með Ísfirðingum.







