Valmynd

Nebojsa Vidic

Nebojsa er að koma í fjórða sinn hingað og er fyrri þátttakendum búðana að góðu kunnur. Hann þótti efnilegur bakvörður á sínum yngri árum í Serbíu og átti leiki þar sem hann skoraði nokkrum sinnum 40+ stig í leik. Gekk það svo langt að einhver líkti honum við Toni Kukoc en sjálfur hefur Nebojsa ekki viljað kannast við það og finnst fulllangt gengið. Hann snéri sér hins vegar tiltölulega ungur alfarið að þjálfun, eða innan við 22 ára gamall árið 1994 og hefur haft þjálfun sem aðalstarfí 18 ár. Hann hóf þjálfun í yngri flokkum og náði þá fljótt merkum árangri þegar hann skilaði liðisínu 6. sæti í Serbíu. Síðan þá hefur hann að mestu þjálfað lið í næstefstu deild í Serbíu auk þess semhann hefur tekið að sér mikið af sérþjálfun, meðal annars fyrir landsliðsmenn Rússlands svo eitthvað sé nefnt. Síðasta tímabil fluttist hann svo búferlum og þjálfaði lið Þórs frá Akureyri. Nebosja er einn sábesti tækniþjálfari sem við höfum kynnst og mikill fagmaður.

Facebook

Leikir og atburðir

Næstu atburðir
Vefumsjón