Jón Oddsson
Það þarf vart að kynna Jón Oddsson sem meðal annars er einn af örfáum Íslendingum sem hefur afrekar að hafa spilað með A-landsliðum bæði í fótbolta og frjálsum. Hann var í frjálsíþróttalandsliði Íslands í um það bil tvo áratugi. Erlendur þjálfari sem kom hingað til lands að meta hann, taldi hann vera mikið efni á sínum tíma, en þá var Jón reyndar 35 ára (skv. áræðanlegum heimildum). Hann hefur gríðarlega mikla reynslu í ástands og styrktarþjálfun og auk þess almennri körfuknattleiksþjálfun. Jón lék körfuknattleik við góðan orðstý hjá KFÍ, Val (Íslands- og bikarmeistari 1980) og eins með ÍS í efstu deild. Með ÍS náði Jón því að leika í Evrópukeppni bikarhafa gegn stórliði Barcelona 1978, ekki hafa margir leikið það eftir. Allir iðkendur og þjálfarar geta litið til hans sem fyrirmynd og innblástur.







