Valmynd

Hrafn Kristjánsson

Yfirþjálfari Æfingabúða KFÍ er Hrafn Kristjánsson þjálfari meistaraflokka karla og kvenna KR. Hrafn lék með KR í yngri flokkum og upp í meistaraflokk. Hann færði sig til KFÍ árið 1996, þar sem hann lauk ferlinum árið 2004. Hann var þjálfari meistaraflokks karla tvö síðustu tímabilin ásamt því að leika með liðinu. Hann hefur síðan þjálfað lið Þórs Akureyri og Breiðabliks. Hann tók við þjálfun meistaraflokka karla- og kvennaliða KR síðastliðið haust. Hrafni tókst að vinna bikarmeistaratitil Powerade og KKÍ í fyrstu atrennu með mfl. karla KR núna fyrir skemmstu og er það í fyrsta sinn síðan 1991 sem KR nær þeim stóra, og svo bætti hann enn við með því að vinna Íslandsmeistaratitilinn með meistaraflokk karla einnig. Árinu lauk svo með því að Hrafn var kosinn þjálfari ársins á lokahófi KKÍ. Nú í ár endaði Hrafn í öðru sæti Iceland Express deildar og náði aðkomast í undanúrslit í Íslandsmóti og bikar.

 

Scott Stapler

Það er sannarlega hvalreki á fjörur körfuboltaiðkenda á landinu að fá Scott Stapler hér til landsins til liðs við Körfuboltabúðir KFÍ. Stapler er þaulreyndur þjálfari eftir 12 ár sem aðstoðarþjálfari hjá 1. deildar háskólum í Bandaríkjunum þar sem hann hefur nánast komið að öllum hlutum leiksins. Hann hefur nú snúið aftur til heimahaganna í Huntsville Alabama þar sem hann rekur körfuboltaskólann Alabama Basketball Academy þar sem lögð er áhersla á grunnfærni og séræfingar efnilegra leikmanna. Auk starfa sinna sem háskólaþjálfari hefur hann farið í ótal ferðir til Evrópu á sumrin, unnið víðsvegar í hvers kyns æfingabúðum og haldið fyrirlestra og námskeið á vegum körfuknattleikssambanda víðsvegar um heiminn. Nú síðast fór hann til Spánar þar sem hann sá um þjálfun stórra leikmanna hjá Athletes in Action í Barcelona. Stapler þykir gríðarlega sterkur hvað varðar sérþjálfun leikmanna og þá sérstaklega stórra leikmanna og verður gaman að sjá hvað hann kemur með inn í þá sterku flóru þjálfara sem koma saman á Ísafirði í byrjun júní.

Facebook

Leikir og atburðir

Næstu atburðir
Vefumsjón