Valmynd

Körfuboltabúðir KFÍ 2012

Búðirnar hefjast miðvikudaginn.6 júní og þeim lýkur að kvöldi mánudagsins 11. júní með lokahófi og verðlaunaafhendingu

Samhliða búðunum verður boðið upp á þjálfaranámsskeið frá föstudeginum 8. Júní til sunnudagsins10. Júni og verður ekki rukkað fyrir námskeiðið. Þarna er klárlega á ferðinni kjörið tækifærifyrir metnaðarfulla þjálfara að slá tvær flugur í einu höggi, bæta við þekkingu sína og njóta töfraVestfjarða!

Skráningar í búðirnar og á þjálfaranámsskeiðið sendist á netfangið kfibasketball@gmail.com, einnig hægt að fá frekari upplýsingar hjá Guðjóni Þorsteinssyni í síma 896-5111.

 

Taka verður fram í skráningur:

* Nafn iðkenda og kennitölu

* Forráðamaður, netfang og símanúmer

* Félag (ekki nauðsynlegt)

* Hvað iðkandinn er skráður í (allur pakkinn, eða hlutar)

* Sérþarfir iðkenda (lyf, ofnæmi og annað)
 

 

Verð fyrir þjálfun, gistingu og fullt fæði er 38.000  samtals.  

Ef einstakir hlutar pakkans eru teknir út þá kostar hver eining:

Stakar búðir kosta kr. 18.000,  gisting í 6 nætur 6.000 og fullt fæði 14.000. 

 

Staðfestingargjald er 5.000 og ef greitt er fyrr 1. maí er 10% afsláttur veittur af fullu verði.

 

Þegar pöntun er móttekin er sent staðfesting til baka.

 


Praktísk atriði

Gistingin er svefnpokagisting, boðið er upp á rúm en taka þarf með svefnpoka eða sængur og kodda.

Foreldrar/fararstjórar munu hafa aðgang að þvottavélum þannig að óþarfi að hafa föt til skiptana fyrir alla dagana.

Frítt verður í sund fyrir þátttakendur þannig að upplagt að taka sundfötin með og teygja úr sér í pottinum á milli æfinga.

Umgengisreglur á vistinni

Facebook

Leikir og atburðir

Næstu atburðir
Vefumsjón