Valmynd

föstudagurinn 24. febrúar 2012 | Mfl. kvenna

Stelpurnar með góðan sigur á Jakanum

Meistaraflokkur kvenna spilaði fyrri leik sinn gegn Stjörnunni í kvöld og náðu flottum sigri þar sem vörnin tók þetta eins og svo oft í vetur. Lokatölur 69-53.

 

Jafnt var með liðunum í byrjun, en gestir okkar voru þó með örlítið forskot þar sem við vorum ekki alveg að vanda sendingar og ekki nógu fljótar til baka í vörn og Stjörnustelpurnar voru með forskot á okkur eftir fyrsta leikhlutann, 16-19. Í öðrum leikhluta jafnaðist leikurinn og var jafnt á með liðunum og þegar haldið var til tedrykkju var staðan 32-34.

 

Pétur tók rándýra látúnsbarkaræðu á stelpurnar í pásunni og var allt annað að sjá til þeirra og tóku þær þriðja leikhlutann 14-9 og staðan 46-43 fyrir síðasta leikhlutann.

 

Í síðasta leikhlutanum reimdu stelpurnar á sig skóna og tóku leikinn í sínar hendur og litu aldei í baksýnisspegilinn og lönduðu öruggum sigri. Lokatölur eins og a´pur var greint frá 69-53.

 

Vörnin og fráköstin eru oft orsök og afleiðing góðra sigra og svo var í kvöld. Liðsheildin var til mikils sóma og erum við hreyknar af stúlkunum okkar.

 

Seinni leikurinn gegn Stjörnunni er á morgun kl. 14.00 og hvetjum við alla að koma og hvetja þær til dáða. Þeir sem ekki komast get horft á hann í beinni HÉR

 

Hér er tölfræðin

Ath að leikmaður #9 er Kristín Úlfarsdóttir og #4 er Málfríður Helgadóttir.  Sólveig Páls og Stefanía Ásmunds  voru ekki með.

fimmtudagurinn 23. febrúar 2012 | Mfl. karla,KFÍ-TV

Smá upprifjun frá Fjölni Baldurssyni og KFÍ-TV

Bara til að minna á okkur fyrir Vestan. KFÍ-TV, Fjölnir Baldursson og allt frábæra fólkið að verki !!! Og við erum hvergi nærri hætt. Það verður bein útsending frá seinni viðureign mfl. Kvenna KFÍ-Stjarnan laugardaginn 25. febrúar kl. 14.00 á  KFÍ-TV.

 

Fyrri leikurinn gegn Stjörnunni er á föstudagskvöldið 24. febrúar kl. 18.30

 

Það verður svo rosalega gaman að taka við bikarnum í beinni 9. mars eftir leik gegn Borgarnesi og við ætlum að fylla Jakann af fólki og gleðjast saman.

 

Njótið í botn hér fyrir neðan með að klikka á leikina.

 

KFÍ-ÍG

 

KFÍ-Fjölnir 

 

KFÍ-Hamar

 

KFÍ-Fsu

 

KFÍ-Haukar

 

KFÍ-ÍA

miðvikudagurinn 22. febrúar 2012 | Tilkynningar

Grímuballið verður laugardaginn 10.mars

Grímuball KFÍ og Ísfólksins verður haldið laugardagskvöldið 10. mars og er undirbúningurinn á fullu. Þetta er í fjórtanda sinn sem við höldum grímuball og hefur metnaður fólks í búningahönnunn verið mögnuð. Ekkert verður gefið eftir og glæsileg verðlaun í boði eins og venjulega. Nánar verður sagt frá viðburðinum eftir helgina, en margt rosalega flott mun koma í ljós. Eitt er þó sem aldrei mun breytast og það er að þetta verður rosaleg skemmtun.

mánudagurinn 20. febrúar 2012 | Mfl. kvenna

Stelpurnar næstar á dagskrá

Það er klárt mál að stelpurnar í meistaraflokk ætla ekki að gefa neitt eftir í baráttu sinni í 1.deild kvenna og ætla þær sér sigur í deildinni.

 

Takmarkið er sett á að sigra 1. deildina en þær eru núna í 2-3 sæti með 14 stig og tvo tapaða leiki ásamt Stjörnunni, en Grindavík er á toppnum með 18 stig og einn tapaðan leik.

 

Núna um helgina kemur lið Stjörnunnar frá Garðabæ á Jakann og leika hér tvo leiki við stelpurnar. Sá fyrri er á föstudagskvöldið og hefst kl. 18.30 og sá síðari á laugardag kl. 14.00.

 

KFÍ-TV ætlar að vera með beina útsendingu frá síðari leik liðanna á laugardaginn.

 

Það er þó von okkar að við komum og stuðjum við bakið á stelpunum, þær eru búnar að standa sig frábærlega og eru tilbúnar fyrir verkefni helgarinnar.

 

Fjölmennum á leikina og öskrum stelpurnar áfram.

 

Áfram KFÍ

sunnudagurinn 19. febrúar 2012 | Mfl. karla

Meistaraflokkur KFÍ deildarmeistarar í 1. deild karla

Þá er það ljost eftir úrslit dagsins að ekkert lið getur náð okkur að stigum og erum við því Deildarmeistarar í 1. deild og sæti í Iceland Expressdeildinni staðreynd !!!!!!

 

Þetta er frábær árangur hjá strákunum og Pétri Má þjálfara. Núna erum við með 30 stig og aðeins með einn tapleik að baki í vetur. Við eigum eftir tvo leiki gegn Breiðblik úti og svo gegn frændum okkar úr Borgarnesi hér heima 9. mars, en Borgarnes er í öðru sæti eins og er með 22 stig og 4 tapleiki. Þetta hefur útheimt mikla vinnu og eru strákarnir og Pétur þjálfari vel að þessu komnir og erum við öll rosalega stolt af þeim

 

Það er samt ljóst að við erum ekkert að hætta og ætlum okkur sigur í þeim leikjum sem við eigum eftir. Deildin er mjög spennandi og eru liðin í 2-7 sæti í bullandi slag um sætin í umspili um sæti í IE deildinni og þar eru Höttur, Borgarnes, Hamar, ÍA og Þór Akureyri að berjast um heimavallarrétt og sæti í úrslitakeppninni.

 

Árangur KFÍ í vetur hefur verið frábær. Við enduðum í 2. sæti í okkar riðli í Lengjubikarnum og lögðum að velli bæði Hauka og Fjölni þar, en þau eru í IE deild. Og svo komust við í fjöggurra liða úrslit í Powerade bikarkeppninni þar sem við duttum út gegn Powerade meisturunum sjálfum Keflavík 77-90 í hörkuleik, þannig að uppskeran er frábær og framtíðin björt.

 

ÁFRAM KFÍ

Facebook

Leikir og atburðir

Næstu atburðir
Vefumsjón