Valmynd

laugardagurinn 3. mars 2012 | Yngri flokkar

"Púkarnir" á Nettómótið í Reykjarnesbæ

Það er mikil tilhlökkun í yngri iðkendum okkar sem eru á leið suður til að taka þátt í hinu árlega Nettómóti í Reykjarnesbæ. Þetta mót er það stærsta fyrir "púkana" og allt hið glæsilegasta en allar upplýsingar eru á HEIMASÍÐU heimamanna. Á þessu móti eru allir sigurvegarar og tilgangurinn er að sýna sig, sjá aðra og gleðjast yfir skemmtilegustu íþrótt í heimi.

 

Góða ferð 

föstudagurinn 2. mars 2012 | Tilkynningar

KFÍ-TV ekki að standa sig ?

Það vekur furðu margra áhangenda KFÍ að á karfan.is er skoðanakönnun í gangi þar sem spurt er hverjir séu með bestu beinu vef útsendingarnar. Við höfum hingað til talið okkur standa framarlega þar og hafa Þór frá Akureyri einnig sent út með miklum sóma, en einhverra hluta vegna eru þessi tvö félög ekki með í téðri könnun. Við verðum greinilega að bæta okkur, gera betur og vekja þá meiri eftirtekt á okkur fyrir næstu könnun

þriðjudagurinn 28. febrúar 2012 | KFÍ-TV,Mfl. kvenna

Myndbrot út leik stelpnanna

Fjölnir Baldursson og KFÍ-TV voru á leik mfl. kvenna KFÍ-Stjarnan s.l. laugardag þar sem við sendum leikinn beint út, en leikurinn endaði 60-57 eftir æsispennandi lokamínútur og er afrakstur Fjölnis hér í MYNDBROTI

sunnudagurinn 26. febrúar 2012 | Mfl. karla

Fullt hús hjá meistaraflokkum okkar um helgina

Strákarnir voru að leggja Breiðablik í Kópavogi, lokatölur  og fóru þar með að ráði stúlknanna sem unnu báða sína leiki gegn Stjörnunni og er frétt um þær hér neðar á síðunni.

 

Leikur drengjanna var aldrei í hættu og voru allir að spila vel. Lokatölur 78-100  og einn leikur eftir gegn Skallagrím frá Borgarnesi og er hann hér heima 9. mars þar sem við munum taka á móti bikarnum sem deildarmeistarar 1. deildar og lofum við miklu fjöri á Jakanum þar sem margt verður gert til að skemmta öllum Vestfirðingum.

 

Stig KFÍ. Chris 24 stig (19 fráköst og 3 varin skot), Edin 24 stig (5 fráköst og 5 stoðir), Jón Hrafn 16 stig (5 villur og spilaði 16 mínútur sem gerir 1 stig per mínútu), Ari 14 stig (4 stoðir og var 100% í þriggja), Craig 13 stig (3 fráköst, 7 stoðir og 5 rændir), Jón Kristinn 4 stig (2 fráköst), Kristján Pétur 3 stig (3 fráköst), Guðni Páll 2 stig (2 fráköst og 3 stoðir)

 

Liðsheild, vörn, sigur..

 

Áfram KFÍ !!!

laugardagurinn 25. febrúar 2012 | Mfl. kvenna

Enn sigra stelpurnar

Seinni leikurinn var gegn Stjörnunni í dag, en stelpurnar okkar sigruðu þann fyrri í gærkvöld 69-53. Að þessu sinni varð leikurinn enn meira spennandi en fór svo að lokum að Ísstelpurnar okkar unnu aftur, en núna með þrem stigum, lokatölur 60-57.

 

Enn og aftur voru það stúlkurnar úr Garðabænum sem byrjuðu betur og náðu mest sjö stiga forustu, en KFÍ kom ávallt til baka. Í tedrykkjunni voru þó Stjörnustúlkur með yfirhöndina, staðan 32-37. Og aftur á innan við sólarhring messaði Pétur Már hressilega yfir þeim og komu þeir eins og naut í flagi í seinni hálfleik og hélst mikil spenna þar sem liðin skiptust á körfum. Þó voru KFÍ stúlkurnar með forskot lengstum, en gestirnir hættu aldrei og náðu að koma sér inn í leikinn og þegar skammt var eftir var staðan jöfn 52-52 og allt opið.

 

En taugarnar héldu okkar megin í dag og voru heilladísirnar okkar megin í restina og fyrsta sætið okkar í 1. deild með 20 stig með tvo tapaða, en Grindavík er með 18 einn leik tapaðan, en færri leiki spilaða  og verða lokaleikirnir okkar í deildinni meiriháttar spennandi og erum við í baráttu um sæti í Iceland Express deildinni rétt eins og strákarnir eru búnir að tryggja sér. Það er gaman að sjá báða meistaraflokkana vera í efsta sæti í 1.deild á www.kki.is :)

 

Sýnt var beint frá leiknum á KFÍ-TV og var mikil ánægja með útsendinguna. Okkur telst að þetta sé í fyrsta skipti sem sent úr leik í 1. deildinni og von á meiru þar.

 

Tölfræðin kemur seinna í dag, en nú eru allir að horfa á leik UMFB í Bolungarvík í 2.deildinni þar sem strákarnir þar eru að berjast við að komast í úrslitakeppnina í 2. deild.

 

Áfram KFÍ

Facebook

Leikir og atburðir

Næstu atburðir
Vefumsjón