Endapunktur á frábærri viku hjá krökkunum.
Endapunktur á frábærri viku hjá krökkunum.
Þá er síðasti dagur búðanna hafinn.  Dagskrá dagsins eru æfingar nú í morgunsárið og síðan verða úrslit í einstaklingskeppnum.  Að því loknu eða í kringum 11.30 verða viðurkenningar og búðaskírteini afhent.  Um kl. 12.30 verður kveikt upp í Muurikka pönnum og öllum aðstandendum og iðkendum boðið til grillveislu og búðum formlega slitið.

Allir hjartanlega velkomnir í grillið.  Þátttakendur, foreldrar, systkini sem og ættingjar og vinir.
laugardagurinn 12. júní 2010

Körfuboltabúðir KFÍ 2010: Nebosja Vidic

Nebosja Vidic.  (Ljósm. H. Sigm)
Nebosja Vidic. (Ljósm. H. Sigm)
Nebosja er okkur vel kunnugur, eins og hefur komið fram áður hér á síðunni.  Þetta er hans önnur ferð til Ísafjarðar og tók hann þátt í búðunum í fyrra.  Hann þekkir elstu strákana úr KFÍ orðið nokkuð vel og hefur fengið nokkra innsýn í íslenskan körfuknattleik á undanförnum tveimur árum.  Nebosja er þjálfari sem við metum mikils og því var hann að sjálfsögðu tekinn örviðtali og spurður sömu spurninga og hinir starfsbræður hans.

"Það kom mér nokkuð á óvart hversu margir krakkar hér búa yfir ríkulegum hæfileikum í körfuknattleik og sum hver eru þau, hvað það varðar svipuð því sem við þjálfarnir þekkjum best til dæmis í heimalandi mínu, Serbíu"
...
Meira
Sólrún Inga, Svanhildur og Kristján.  (Ljósm. H.Sigm)
Sólrún Inga, Svanhildur og Kristján. (Ljósm. H.Sigm)
Haukar áttu verðuga fulltrúa í búðunum að þessu sinni.  Svanhildur Guðlaugsdóttir var mætt ásamt syni sínum Kristjáni Sverrissyni og frænku þeirra henni Sólrúnu Ingu Gísladóttur.  Þau frændsystkin eru bráðefnilegir ungir leikmenn Hauka og létu bæði að sér kveða í búðunum. 

"Krakkarnir eru mjög ánægð og svona framtak er ekki hvað síst mikilvægt hvað félagslega þáttinn varðar, bæði fyrir krakkana og þjálfarana, já og auðvitað líka fyrir foreldra og fararstjóra"
...
Meira
laugardagurinn 12. júní 2010

Körfuboltabúðir KFÍ 2010: Gustavo Rios Gonzalez

Gustavo Rios Gonzalez.  (Ljósm. H. Sigm)
Gustavo Rios Gonzalez. (Ljósm. H. Sigm)
Fréttaritari KFÍ-síðunnar greip Gustavo á milli æfinga og fékk hann í stutt örviðtal.  Líkt og aðrir gestir hérna fékk hann spurningar um hvernig hann teldi að búðirnar væru að ganga og hvort hann vildi koma einhverjum skilaboðum til krakkanna eða foreldra.

"Krakkarnir eru vinnusöm og öguð í vinnubrögðum á æfingum, það tel ég vera mikinn kost hjá leikmanni.  Þau hafa réttu afstöðuna til körfuboltans og ef þau halda svona áfram eiga þau að geta náð góðum árangri"
...
Meira
Guðni Ólafur Guðnason býður gesti velkomna í Tjöruhúsið í fiskiveislu KFÍ.  (Ljósm. H.Sigm)
Guðni Ólafur Guðnason býður gesti velkomna í Tjöruhúsið í fiskiveislu KFÍ. (Ljósm. H.Sigm)
« 1 af 13 »
Skapast hefur sú hefð í þessum æfingabúðum, að allir þjálfarar, fararstjórar og helstu fulltrúar styrktar- og samstarfsaðila KFÍ í þessu verkefni komi saman til dýrindis fiskiveislu í Tjöruhúsinu í Neðsta kaupstað.  KFÍ býður til veislunnar með stuðningi Klofnings og þökkum við þeim enn á ný fyrir stuðninginn.  ...
Meira
« September »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    
Næstu atburðir