Valmynd

þriðjudagurinn 22. febrúar 2011 | Ýmislegt

KFÍ þakkar HG stuðninginn!

Fyrir síðasta heimaleik greip KFÍ tækifærið og óskaði HG til hamingju með 70 ára afmæli fyrirtækisins.  HG hefur einmitt verið einn ötulasti styrktaraðili félagsins frá upphafi.  Guðjón M. Þorsteinsson afhenti mynd og afmæliskveðju frá KFÍ, sem Kristján Jóakimsson veitti móttöku fyrir hönd HG.  Takk fyrir okkur og til hamingju með afmælið HG!
mánudagurinn 21. febrúar 2011 | Mfl. karla

Nú fer að kólna á Jakanum

Fjölnismenn koma hingað á fimmtudagskvöld og heyja baráttu upp á líf sitt í IE deildinni og það sama á við um okkur í KFÍ. Það eru fjórir leikir eftir í deildinni og við getum unnið þá alla með hjálp okkar frábæra stuðningsfólks. Við ætlum að sýna allar okkar sparihliðar og skorum á alla að koma Jakann og verða vitni af því. Leikrurinn er fimmtudagskvöldið 24. febrúar og hefst kl. 19.15.

1,2,3 KFÍ

föstudagurinn 18. febrúar 2011 | Mfl. karla

Sigur á Hamri

KFÍ voru rétt í þessu að leggja Hamar að velli 86-83 í æsispennandi leik. Þetta var mjög skemmtileg rimma á milli liða sem urðu að fá tvö stig, en þennan daginn var það KFÍ sem spilaði betur og unnu sanngjarna þriggja stiga sigur.

Það sem landaði þessum sigri var liðsheild, vörn og hungur í sigur og þar með höfum við unnið tvo heimaleiki í röð og menn farnir að kunna betur inn á hvern annan. Nú er bara að byggja á þessu. Í pottinum eru átta stig og þau viljum við fá.

Næsti leikur er einnig heima gegn Fjölni næsta fimmtudag 24. febrúar kl. 19.15. Nú verða allir að koma og hjálpa okkur að landa sigri.

1,2,3 KFÍ

Tölfræði leiksins er hér 
fimmtudagurinn 17. febrúar 2011 | Mfl. karla

KFÍ og Fúsíjama-TV á staðnum annað kvöld

Upptökulið KFÍ-TV og Fusijama-TV verða á Jakanum annað kvöld ásamt upprennandi stjörnuþul, en þar er enginn annar en Tómas Ari Gíslason (Halldórssonar) á ferð og er með látúnsbarka sem hæfir mjög í beinar útsendingar þar sem hraður leikur er á boðstólnum. Þetta stjörnuteymi klikkar ekki frekar en fyrri daginn og eru allir sem ekki geta mætt í eigin persónu hvattir til að setjast fyrir framan tölvuna með popp og ískalt Coke og gíra sig upp fyrir góða skemmtun.

Smelltu hér til að sjá útsendingu 
þriðjudagurinn 15. febrúar 2011 | Mfl. karla

KFÍ-Hamar á föstudagskvöld

Það er sannkallaður stórslagur á föstudagskvöldið n.k. 18 febrúar og hefst leikurinn kl. 19.15. Þar koma Hamarsmenn í heimsókn og er þetta sannkallaður STÓR leikur. Bæði lið verða að vinna. Við til að halda okkur á floti í deildinni og Hamar til að koma sér úr botnbaráttu og í slag um sæti í úrslitakeppninni. Hver stig eru mikilvæg í dag og búast má við sannkölluðum hörkuleik. Við skorum á alla að mæta á Jakann og láta heyra ærlega í sér. Við þurfum á öllum að halda til að eiga möguleika þannig að láttu að þér kveða og mættu með raddböndin þanin.

Facebook

Leikir og atburðir

Næstu atburðir
Vefumsjón