Valmynd

þriðjudagurinn 26. apríl 2011 | Tilkynningar

Pétur Már Sigurðsson ráðinn yfirþjálfari KFÍ.

Körfuknattleiksfélag Ísafjarðar og Pétur Már Sigurðsson hafa gert með sér 2 ára samning um þjálfun hjá KFÍ. Verður hann yfirþjálfari félagsins þar sem hann er ábyrgur fyrir daglegum rekstri og mun þjálfa meistaraflokka karla og kvenna og yngri flokka. Pétur er af mörgum talinn einn af allra efnilegustu ungu þjálfurum á Íslandi . Hann er lærður íþróttakennari og er að klára íþróttafræðinginn frá Háskóla Íslands.

Pétur hefur spilað með Val, Skallagrím, Laugdælum, Þór Akureyri og að sjálfsögðu KFÍ. Leikmannaferill Péturs hefst ´94 og er hann enn að og hefur hann spilað um 300 leiki í meistaraflokk. Hann spilaði samtals sex tímabil hjá okkur hér fyrir vestan og er öllum hnútum kunnugur. Þess má til gamans geta að stigamet hans í einum leik var 37 í leik KFÍ gegn KR í febrúar 2005. 
 
Pétur hefur með góðum árangri þjálfað lið Laugdæla undanfarin ár og hefur verið gerður góður rómur af hans vinnu. Það er mikil tilhlökkun hér fyrir vestan að fá Pétur til starfa fyrir félagið og er enginn vafi í okkar huga að samstarfið mun verða farsælt. Við ætlumst mikils að drengnum, og hann af okkur og þannig á það að vera.
 
Pétur Már kemur hingað og tekur þátt í Körfuboltabúðum KFÍ 5-12. júní og mun eftir það setja upp sumaráætlun með styrktarþjálfara félagsins Jóni Oddsyni.

Við bjóðum Pétur Már velkominn aftur til KFÍ. 
Þetta viðtal fengum við að setja hér inn með góðu leyfi karfan.is

Vatnaskil verða nú í körfuboltanum á Ísafirði þar sem Guðjón Þorsteinsson hefur ákveðið að segja skilið við stjórnarstörf KFÍ en hann hefur um árabil verið helsti prímusmótor þeirra Ísfirðinga í körfunni. Guðjón sem hefur verið viðriðinn körfuna sem leikmaður, þjálfari og stjórnarmaður síðustu þrjá áratugi hjá UMFB og KFÍ. Hann sat einnig í stjórnum Íþróttabandalags Ísfirðinga og Héraðssambands Vestfirðinga og var starfandi formaður þess um tíma. Guðjón vendir nú kvæði sínu í kross við almenn félagsstörf fyrir vestan til þess að geta einbeitt sér að verkefnum sínum sem stjórnarmaður hjá Körfuknattleikssambandi Íslands.

Guðjón mun þó áfram þjálfa allra yngstu iðkendur á Ísafirði.
Guðjón hefur verið búsettur á Ísafirði síðan árið 1980 en hann lék m.a. með KFÍ, UMFB, KR og Njarðvík á sínum tíma og hefur marga fjöruna sopið í íslenska boltanum. Hann hefur gefið sjálfum sér viðurnefnið ,,þingrotta“ og jafnan liðtækur og fyrirferðamikill á sambandsþingum KKÍ. Að eigin sögn sagðist Guðjón síðast hafa misst af KKÍ þingi þegar Ómar hafði hár eins og hann komst að orði. En grínlaust sagðist hann taka þingstörfum alvarlega og finnst alltaf jafn gaman að mæta þar til skrafs og ráðagerða með félögum sínum innan hreyfingarinnar........
Meira
laugardagurinn 9. apríl 2011 | Ýmislegt

Aðalfundi KFÍ lokið.

Það var góð mæting á aðalfund KFÍ þar sem samankomnir voru t.d. þrír fyrrverandi formenn félagsins auk formanns HSV og sá sem hélt utan um fundinn og sá til þess að honum væri rétt stjórnað var rétt var fyrrverandi gjaldkeri félagsins, fyrrum forseti JC á Íslandi og dyggur stuðningsmaður KFÍ Gísli Elís Úlfarsson.

Um venjuleg aðalfundarstörf var að ræða og einnig voru lög félagsins endurnýjuð og stílfærð til þess að koma á móti nútímavæðingu samfélagsins. Það er mjög gaman að segja frá því að stjórnin skilaði hagnaði á starfsári sínu sem sýnir að farið var eftir línum sem lagðar í fjárhasáætlun félagsins fyrir starfsárið.

Fyrst steig í pontu stjórnarmaður í KKÍ Guðjón. M. Þorsteinsson sem færði fundinum góða kveðju frá sambandinu og sagði frá hvað væri á döfinni þar á bæ. 

Og þá var komið að skýrslu stjórnar sem Sævar Óskarsson starfandi formaður ritaði og las Birna Lárusdóttir skýrsluna í forföllum formanns. 
...
Meira
laugardagurinn 2. apríl 2011 | Yngri flokkar

Strákarnir í drengjaflokk í úrslitakeppnina í fyrsta sinn.

Strákarnir í drengjaflokk KFÍ eru að keppa í úrslitakeppni í fyrsta sinn og fylgja eftir góðum árangri stelpnanna okkar. KFÍ náði þeim frábæra árangri að sigra 9 af 16 leikjum sínum í vetur og enduðu í 4 sæti af 8 liðum með sama stigafjölda og Snæfell/Borgarnes, en KFÍ strákarnir sigraðu báða leikina gegn þeim og komast því í úrslitakeppnina. 

Andstæðingar okkar verða strákarnir frá Njarðvík sem eru þeir sterkustu í dag, og eru taplausir í vetur. Leikurinn fer fram í Njarðvík á morgun kl. 12.30 og ætla KFÍ strákarnir að gefa allt sitt í verkefnið.

Til hamingju með þetta strákar.
Áfram KFÍ
miðvikudagurinn 30. mars 2011 | Tilkynningar

Aðalfundur - ath!! breyttur fundartími

Aðalfundur KFÍ verður haldinn miðvikudaginn 6. apríl kl. 18.00

Fundarstaður: Íþróttahúsið Torfnesi, efri hæð.
Venjuleg aðalfundarstörf.

 

Stjórn KFÍ

 

Athugið breyttan fundartími, áður auglýstur tími breytist úr 20.00 til 18.00.

Facebook

Leikir og atburðir

Næstu atburðir
Vefumsjón