Valmynd

föstudagurinn 4. febrúar 2011 | Mfl. kvenna

Frestun á leik hjá Meistarflokki kvenna

Leikur sem vera átti á laugardaginn gegn Laugdælum hefur verið frestað. Nýr leiktími væntanlegur og mun birtast á atburðadagatalinu þegar hann kemur í hús.

fimmtudagurinn 3. febrúar 2011 | Mfl. karla

Tap í Garðabæ

Einbeitingaleysi í vörninni varð okkur að falli gegn Stjörnunni í kvöld, lokatölur 83-75 (39-33). Við sýndum ágætis rispur en það er ekki nóg. Stjarnan náði mest 19 stiga forskoti gegn okkur og það er ekki gott. Nú er að duga eða drepast gegn Hamri hér heima 10 febrúar, en það má segja að það sé síðasta tækifæri okkar að halda okkur í deildinni.

En ef að því takmarki á að ná þurfa menn að vinna meira saman í vörn og sókn. Við fáum frekari fréttir á morgun. Skástir í kvöld voru Darco, Craig og Rich. Aðrir voru í skógarferð og eru vinsamlegast beðnir að skila sér fyrir næsta leik.

Tölfræði leiksins
miðvikudagurinn 2. febrúar 2011 | Yngri flokkar

Nokkrar myndir frá Póstmótinu

Hér erru nokkrar myndir frá Póstmótinu og þökkum við Starra Frey Jónssyni og köppunum í Breiðablik fyrir sendinguna. Klikkið á myndina og flettið

Og hér er viðbót sem Guðmundur Einarsson tók og þökkum við fyrir það :) SJÁ HÉR
þriðjudagurinn 1. febrúar 2011 | Mfl. karla

Stjarnan-KFÍ á fimmtudagskvöld

Meistaraflokkur KFÍ fara suður á fimmtudag n.k. og spila gegn Stjörnunni frá Garðabæ. Leikurinn er í Ásgarði og hefst kl. 19.15. Við erum að berjast við fall og Stjarnan vill tryggja sér sæti í úrslitakeppninni, og hvorugt lið má við að gefa frá sér stigin tvö. Það verður því hart barist og skorum við á Vestfirðinga á höfuðborgarsvæðinu að fjölmenna og styðja okkar stráka.

Áfram KFÍ
mánudagurinn 31. janúar 2011 | Yngri flokkar

Frábær skemmtun á 50 ára afmæli KKÍ

Það er óhætt að segja að krakkarnir okkar hafi skemmt sé vel í Smáralindinni á laugardaginn þegar KKÍ hélt veglega afmælisveislu í tilefni af 50 ára afmæli sambandsins. Þarna var allt í gangi, afmæliskaka í metravís og drykkir frá Vífilfell. Landsliðsmenn og konur, erlendir leikmenn og fleiri hundruð manns og allir mættir til að taka þátt í leikjum og gleðjast saman. Við hjá KFÍ þökkum kærlega fyrir okkur og var virkilega gaman að sjá hvað mörg félög tóku þátt í þessum frábæra gjörning.

Hérna eru myndir sem hinn einstaki Jón Björn frá karfan.is is tók

Áfram karfa. 

Facebook

Leikir og atburðir

Næstu atburðir
Vefumsjón