fimmtudagurinn 10. febrúar 2011 | Mfl. karla
miðvikudagurinn 9. febrúar 2011 | Mfl. kvenna
KFÍ-Stjarnan 1.deild.kvk
Stelpurnar í KFÍ taka á móti Stjörnunni á laugardaginn 12. febrúar kl 13:00. Stelpurnar eru í mikilli framför og ætla þær að leggja allt í sölurnar til þess að ná fram sigri hér á heimavelli. Á undan leikum eða kl 11 er Vestfirski-jógadagurinn og er því tilvalið að skella sér í jóga og í framhaldi að horfa á einn góðan körfuboltaleik.
sunnudagurinn 6. febrúar 2011 | Yngri flokkar
Tap hjá 9. flokk
Strákarnir í 9. flokk töpuðu báðum leikjum sínum, í dag gegn Stjörnunni og Sindra, en aðeins með 3 stigum í seinni leiknum. Hákon tognaði, en við vonum að hann geti spilað síðasta leikinn á morgun gegn Haukum. Það góða við leik strákana er að það er merkileg framför eftir að Ari Gylfason tók við þeim og spilið og leikskilningur mikið mun betri. Það verðu gaman að fylgjast með þessum drengjum.
Áfram KFÍ
Áfram KFÍ
laugardagurinn 5. febrúar 2011 | Ýmislegt
Frábær pistill frá frábærum körfuboltamanni
Þessi pistill hjá Hlyn Bæringssyni er frábær lesning og skorum við á alla sem hér koma inn að fylgjast með skrifum Hlyns, Hann er á nokkurs efa einn allra besti körfuboltamaður sem Ísland hefur alið. Hér er slóðin
föstudagurinn 4. febrúar 2011 | Yngri flokkar
9. flokkur á leið suður til keppni
9. flokkur KFÍ tekur þá í fjölliðamóti að Ásvöllum í Hafnarfirði og hefja þeir leik kl. 15.00 á morgun laugardag gegn Stjörnunni frá Garðabæ. Önnur lið sem keppa með KFÍ eru Sindri frá Hornafirði og gestgjafar Hauka. Því miður urðu IBV frá Vestmannaeyjum að hætta við keppni og eru því aðeins þrjú lið að þessu sinni. En við hvetjum alla sem geta komið og hvatt drengina að gera svo !!
Áfram KFÍ
Áfram KFÍ







