Valmynd

sunnudagurinn 13. febrúar 2011 | Yngri flokkar

Tap gegn KR í drengjaflokki

6 drengjaflokksmenn töpuðu nokkuð örugglega gegn KR fyrr í dag, enduðu leikar 92-55.  Stigaskor og umfjöllun hér í meira:...
Meira
laugardagurinn 12. febrúar 2011 | Mfl. kvenna

Tap gegn Stjörnunni

Meistarflokkur kvenna tapaði í dag fyrir Stjörnunni, lokatölur 51 - 72. Fyrsti leikhluti var góður hjá okkur og leiddum við hann 13 -9. Um miðjan annan leikhluta var svo staðan 20 - 15 en þá náðu Stjörnukonur ágætis áhlaupi og leiddu eftir leikhlutann 23-31. Seinni hálfleikur hófst með sömu báráttu Stjörnukvenna og leiddu þær eftir þriðja leikhluta 34 - 47. Í lokin lönduðu Stjörnukonur sigri og halda örugglega toppsætinu í 1.deild kvenna.

Stigaskor hjá okkar liði var eftirfarandi Stefanía 20, Hafdís 12, Lindsey 8, Sirrý 5 og Sólveig Páls. 5. 

Nú verðum við að spýta í lófanna og klára mótið með baráttu, við eigum mikið inni. Við eigum eigum eftir fjóra leiki, tvo heima og tvo útileiki. Næsti leikur er úti um aðra helgi gegn Val og geta stelpunar vel stolið sigri þar með góðum leik. Næsti heimaleikur  er svo gegn Laugdælum 26.febrúar kl 12.

Áfram KFÍ
laugardagurinn 12. febrúar 2011 | Mfl. karla

Þríhöfði á morgun gegn KR

Á morgun 13. febrúar er þríhöfði gegn KR í DHL-Höllinni. Fyrstar byrja stelpurnar úr 9. flokk kl. 10.00. Síðan eru það drengjaflokkur sem mætir á parketið og hefst sá leikur kl. 14.30.

Og í lokin eigast við meistaraflokkar félaganna og hefst sá leikur kl. 19.15 og hvetjum við alla stuðningsmenn og konur að reyna að mæta á leikina og hvetja.

Leikur meistaraflokka félagsins verður sýndur beint á KR-TV fyrir þá sem ekki komast að vestan og eru þeir drengir sem lýa leiknum mjög skemmtilegir og fylgist með. Það er verðurgt verkefni fyrir neðsta lið IE deildarinnar að takast á við feykilega vel mannað lið KR, en það er enginn beigur í okkar strákum. Þetta eru bara menn sem reima á sig skóna eins og við. Þeir eru með tvær fætur og hendur. Það fer síðan eftir því hver notar þessar græjur best, hvernig fer.

Áfram KFÍ
laugardagurinn 12. febrúar 2011 | Yngri flokkar

9.flokkur stúlkna vann báða leiki sína í dag

Stúlkurnar úr 9. flokk KFÍ unnu báða leiki sína i dag. Sá fyrri var gegn Fjölni og vannst hann 31-28 og sá síðari gegn KR og vannst hann 32-25.
Stigaskor og umfjöllun hér í meira:
...
Meira
föstudagurinn 11. febrúar 2011 | Mfl. karla

Leik frestað enn á ný

Leik KFÍ-Hamars sem vera átti á fimmtudag og svo í kvöld föstudag er enn á ný frestað vegna fárviðris í Reykjavík. Nýr leiktími er föstudagsköldið 18. febrúar kl. 19.15 .


Við viljum aftur minna á að leikurinn verður sendur út í beinni á netinu.


Látið sjá ykkur á Jakanum !!!!

Facebook

Leikir og atburðir

Næstu atburðir
Vefumsjón