Valmynd

miðvikudagurinn 1. febrúar 2012 | Tilkynningar

Poweradebikarinn á sunnudagskvöldið í Keflavík

Leiktími hefur verið settur á vegna leiks okkar í fjögurra líða úrslitum Poweradebikarsins. Leikurinn er settur á sunnudagskvöldið 5. febrúar kl. 19.15.

 

Vegna leiksins hefur Flugfélag Íslands bætt við nettilboðum og er hægt að fá flug fram og til baka laugardag eða sunnudag og til baka á mánudagsmorgun á 14.040 krónur sem er mjög gott verð og hér LINKUR.

 

Við hvetjum alla sem geta að koma með okkur suður og hvetja drengina áfram gegn gríðar sterku liði Keflvíkinga.

Þá fer að líða að stórri helgi hjá KFÍ og ferðagírinn settur í "Overdrive".

 

Fyrst fer meistaraflokkur karla til vina okkar á Akureyri og mun leikurinn vera á föstudagskvöld 3. febrúar. Síðan verður keyrt heim og gert klárt fyrir leik stúlkanna í meistaraflokks kvenna sem spila gegn Laugdælum hér á Jakanum.

 

Síðan mun meistaraflokkur karla fara til Keflavíkur og spila gegn gríðarsterku liði úr bítlabænum í fjögurra liða úrslitum Poweradebikarsins. Gert er ráð fyrir að leikruinn sé á sunnudagskvöldinu 5. febrúar eða mánudagskvöldinu 6. febrúar. Við munum láta vita um leið og tími er staðfestur.

 

7. flokkur stúlkna fer í Stykkishólm og keppir þar við Hörð, Val og heimastúlkur út Snæfell.

 

10. flokkur stúlkna fer til Grindavíkur og keppir þar við Hrunamenn/Hamar, Njarðvík, Keflavík og heimastúlkur úr Grindavík

 

Minni bolti drengja heldur til Borgarnes og tekur þá í fjölliðamóti og keppa strákarnir við Njarðvík, Sæfell og heimadrengina Skallagrím. 

mánudagurinn 30. janúar 2012 | Mfl. karla

KFÍ og Ármann úrslit ráðin

Leikurinn sem átti að vera í gær gegn Ármann í 1. deildinni hefur verið útskurðaður sem 20-0 fyrir okkur á stigatöfluna. Ekki er þetta eitthvað sem við vildum enda ekki of margir heimaleikir og drengirnir vilja spila leikina og láta þá úrslitin ráðast á vellinum. En þetta er niðurstaðan og óskum við Ármenningum alls hins besta í framhaldinu.

 

Tengt efni

sunnudagurinn 29. janúar 2012 | Tilkynningar

ENGINN LEIKUR Í KVÖLD !!!!! Ármann mætir ekki til leiks

Rétt í Þessu var okkur að berast sú frétt að Ármann mæti ekki til leiks í kvöld. Engin skýring er með þessu uppátæki Ármenninga og eru þetta forkastanleg vinnubrögð þar sem ekkert er að færð á landi og í lofti. Leikurinn er eins og alltaf hér massívt auglýstur um allan Ísafjarðarbæ og á fésbókinni.

 

Við munum því miður ekki ná til allra sem ætluðu að mæta og biðjumst við velvirðingar á því, en lítið er hægt að gera með svona skömmum fyrirvara sem þetta er.

 

sunnudagurinn 29. janúar 2012 | Mfl. karla,KFÍ-TV

Bein útsending í kvöld kl. 18.00 í hágæðum á Jakanum

Fyrir þá sem ekki komast á Jakann að sjá leik KFÍ og Ármann í 1. deildinni

 

Hér er slóð á útsendinguna. BEIN ÚTSENDING

 

Við munum byrja að senda út 17.45 og leikur hefst 18.00

 

For those of you that can not come to the game 29th of january. click on the link HERE and you can see the game live.

 

HÉR klippa frá leik gegn Hamar í Poweradebikarnum frá Fjölni Baldurssyni og KFÍ-TV

 

Kv.

Gaui, Gautur, Gummi, Sturla, Fjölnir, Jakob, Jói, Gunnar Bjarni og Einar Bragi.

Facebook

Leikir og atburðir

Næstu atburðir
Vefumsjón