Keflavík-KFÍ í kvöld
Láta berast til þeirra er ekki vita nú þegar að við eigum leik gegn firnasterki liði Keflavíkur í Keflavík í kvöld í fjögurra lða úrslitum Powerade bikarnum.
ALLIR AÐ MÆTA !!! Og fyrir þá sem eru í þeirri stöðu að geta ekki mætt þá erum við að vinna í því að senda beint á KFÍ-TV. Við munum setja fréttir um það og slóð um leið og hægt er.
Áfram KFÍ
Ósigur gegn sterku liði Keflavíkurstúlkna
Síðasti leikur KFÍ stúlkna á þessu fjölliðamóti var gegn sterku liði Keflavíkur, sem eru í algjörum sérflokki að þessu sinni og höfðu sigrað með yfirburðum í leikjum sínum hingað til. Leikurinn var erfiður og vorum við yfirspilaðar frá upphafi. Keflavík spilaði pressuvörn og gáfu ekki þumlung eftir. Staðan í hálfleik var 43:11 og leikurinn þróaðist nákvæmlega eins í seinni hálfleik. Að lokum sigraði Keflavík örugglega með 86 stigum gegn 22 stigum Ísfirðinga. Það er erfitt að keppa gegn jafn sterku liði og Keflavík er.
Stelpurnar fá þó hrós fyrir góða baráttu og að mótslokum er það ljóst að þær hafa tekið framförum frá því síðast þegar þær voru í A-riðli í október á síðasta ári. Það kom niður á okkur hversu fáliðaðar við erum og hefði verið gott að hafa einn til tvo leikmenn til viðbótar til þess að dreifa álaginu betur. Reynslan af þessu móti verður dýrmæt og nýtt til þess að taka næstu framfaraskref.
Einhverjar ætla nú að fara og láta líða úr sér í heilsulindinni, Bláa Lóninu og svo munu stelpurnar fylgjast með stórleik kvöldins þegar meistaraflokkur karla mætir liði Keflavíkur í undanúrslitum Poweradebikarsins. Við vonum að þeir muni hefna fyrir tapið í dag.
Áfram KFÍ!
KFÍ sigur á Hrunamönnum
Stúlkurnar í KFÍ tóku daginn snemma og voru greinilega búnar að hesthúsa morgunmorninu tímanlega, því þær mættu til Grindavíkur tvíefldar eftir gærdaginn. Mótherjar okkar í fyrsta leik voru sterkt lið Hrunamanna-stúlkna. Leikurinn fór af stað með miilli baráttu og greinilegt að liðin ætluðu sér að berjast um alla bolta. KFÍ hafði frumkvæði frá byrjun og leiddi í lok leikhlutans með 10:8. Annar leikhluti var í raun mjög svipaður en KFÍ hafði undirtökin áfram og segi fram úr sunnlensku stúlkunum, staðan í hálfleik 19:14.
Eftir mikil fundarhöld í hálfleik snéru liðin aftur á völlinn og voru greinielga búnar að skipuleggja varnarleikinn heldur betur. Allt var í járnum, mikið af töpuðum boltum beggja vegna vallarins. Í samræmi við þetta var ekki mikið skorað en KFÍ leiddi þó að þriðja leikhluta loknum með 25 stigum á móti 22 stigum Hrunamanna. Hörkuleikur og bæði lið með góða möguleika á hagstæðum úrslitum. Leikurinn var nokkuð jafn framan af leikhluta og þrátt fyrir mjög hátt spennustig í lokin tókst liði KFÍ með mikilli báráttugleði og góðri liðsvinnu, að tryggja sér sigurinn á mjög góðu liði Hrunamanna. Staðan að leik loknum var 36:30 fyrir KFÍ! Góður stigandi í leik stúlknanna.
Stig KFÍ: Eva 17 (amk 8 varin skot), Kristín Erna 8, Lilja 5, Málfríður 4 (4/4 vítum) og Rósa 2. Lovísa var eins og klettur í vörninni.
Viðtal: Tómas Holton og Finnur Jónsson
Félagarnir Tómas Holton landsliðsþjálfari U16 og Finnur Jónsson aðstoðarþjálfari hans voru að sjálfsögðu að fylgjast með leikjunum í dag. Fréttari greip þá glóðvolga í stutt viðtal og Tómas varð fyrri til svars.
Það er alltaf gaman að horfa á fjöllliðamót hjá yngri flokkunum. Ég mæli með því að allir meistaraflokksmenn mæti reglulega á þessi mót svo þeir gleymi því ekki hvernig er að spila körfuboltaleik á fullum krafti allan tímann. Yngri flokka leikmenn eru oft meira bara á stund og stað að gefa sig alla í augnablik leiksins. Það er þessi kjarni sem góðir leikmenn eiga að varðveita. Mig langar alltaf til þess að fara að spila aftur þegar ég hef horft á leiki í svona móti, þegar ég svo stend aftur á fætur að leik loknum, man ég af hverju ég hætti á sínum tíma.
Ástæðan fyrir því að við erum hérna, er að við erum að velja landsliðshóp fyrir komandi verkefni. Vorum með æfingabúðir í desember 2011 og nú erum við að fylgjast með stúlkunum spila með liðunum sínum. Ég get fullyrt að miklar framfarir hafi orðið í kvennakörfunni frá því í gamla daga (þegar ég var að spila) og verður gaman að taka þátt í næstu skrefum á þessum vettvangi.







