föstudagurinn 9. október 2009 | Mfl. karla
Þá er komið að því !
Fyrsti leikur meistaraflokks KFÍ er á sunnudagskvöld klukkan 19.15. Það eru Þórsarar frá Akureyri með Baldur okkar Inga Jónasson í fararbroddi sem mæta í Jakann. Eftir langt og strangt undirbúningstímabil eru strákarnir klárir og óska eftir stuðningi þínum. Mætum öll og hvetjum þá til dáða.







