Tap gegn Njarðvík í bikarnum
Það var ljóst strax frá fyrstu mínútu að Njarðvíkurstelpur myndu vinna. Þær byrjuðu mjög grimmar á meðan okkar stúlkur voru ansi ráðvilltar. Staðan eftir fyrsta fjórðung var 6-15 og í hálfleik var staðan 8-26. Við skorum aðeins 2 stig í 2. fjórðungi sem náttúrulega er ekki alveg nógu gott.l
Hins vegar stóðum við okkur betur í síðari hálfleik. Stelpurnar fóru að berjast betur og sýna meiri grimmd. Virðingin fyrir Njarðvík var fullmikil í fyrri hálfleik.
Þó svo KFÍ hafi spilað betur í síðari hálfleik þá endaði leikurinn eins og fyrr segir með öruggum sigri Njarðvíkinga. 46 tapaðir boltar er fullmikið í einum körfuboltaleik og hefðum við passað betur upp á boltann hefði leikur ekki endað með svona miklum mun. Hins vegar sáust virkilega góðir taktar á köflum og sýndu stúlkurnar þá að þær geta þetta alvega. Það er bara að hafa trú á hlutunum í heilan leik.
Stigin
| Stig | Vítanýring | |
| Sunna Sturludóttir | 11 | 6-1 |
| Vera Óðinsdóttir | 9 | 2-1 |
| Eva Kristjánsdóttir | 4 | 2-0 |
| Guðlaug Sigurðardóttir | 2 |







