Valmynd

sunnudagurinn 18. október 2009 | Yngri flokkar

Sigur hjá Drengjaflokki gegn FSU

Drengjaflokkur KFÍ
Drengjaflokkur KFÍ

Fyrr í dag sigruðu piltarnir okkar í drengjaflokki FSU 52-57 í miklum baráttuleik. Íþróttaakademían á Ísafirði hafði sem sagt betur gegn akademíunni á Selfossi. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann. Eftir fyrsta fjórðung var FSU með eins stigs forskot, í hálfleik vorum við með 4 stig forskot, eftir þrjá leikhluta var forysta okkar 1 stig en svo 5 stig í restina. Leikurinn einkenndist af hörðum leik, varnir voru stíft spilaðar og töluvert dæmt af villum. Við missum Leó og Nonna út af með 5 villur, Gumma einnig vísað af velli, liðið komið 2 stigum undir í stöðunni 52-50 en sýnir mikinn styrk og skorar síðustu 7 stig leiksins. Frábær sigur á erfiðum útivelli.

Stigin í leiknum:
Gummi 17, 10-7 í vítum
Florijan 14, 4-3, 1 þriggja
Óskar 7, 2-1 í vítum
Leó 6, 2-2
Jón Kristinn 6, 2-0 í vítum, 1 þriggja
Sævar 3, 1 þriggja
Hákon 3, 2-1 í vítum
Guðni 1, 1-1 í vítum
Sigmundur 0,2-0 í vítum

Niðurstaða helgarinnar er því 2 góðir sigrar sem verður að teljast mjög gott en liðið lék án Hermanns Hermannssonar sem lá heima lasinn og eins lék Stefán Díegó ekki leikinn gegn FSU.

Facebook

Leikir og atburðir

Næstu atburðir
Vefumsjón