Sigur gegn Grindavík í drengjaflokki
Grindvíkingar voru skrefinu á undan allan leikinn en KFÍ aldrei langt á eftir. Grindavík einu stigi yfir eftir fyrsta fjórðung og eins í hálfleik, staðan 32-33. Grindavík nær síðan góðum kafla í 3. fjórðungi og virtust vera að sigla fram úr en strákarnir okkar gáfust ekki upp. Í stöðunni 34-44 skorum við síðustu 8 stig 3. fjórðungs og er þá 2 stiga munur áður en lokafjórðungurinn hefst.
KFÍ nær loks að jafna er 3 mínútur voru eftir og komast yfir mínútu síðar en svo siglum við fram úr og vinnum leikinn 67-61. Grindvíkingar voru einungis 7 og var greinilegt að þreytan var farin að segja til sín. Þeir skora einungis 6 stig á síðustu 5 mínútum leiksins og við nýtum það til að knýja fram góðan sigur gegn góðu liði Grindavíkur. Margir bráðefnilegir spilarar þar.
Stigin:
| Nafn | Stig | Vítanýting | Þriggja |
| Florijan Jovanov | 28 | 5-5 | 1 |
| Guðmundur Guðmundsson | 15 | 2 | |
| Sævar Vignisson | 9 | 2-2 | 1 |
| Leó sigurðsson | 5 | 1 | |
| Hákon Atli Vilhjálmsson | 4 | 2-2 | |
| Óskar Kristjánsson | 4 | ||
| Stefán Diego | 2 | 2-0 |







