föstudagurinn 18. desember 2009 | Mfl. karla
Meistaraflokkur KFÍ leikur gegn Ármann/Þrótt í kvöld.
Síðasti leikur meistaraflokks KFÍ á þessu ári verður í kvöld og eru andstæðingar okkar þessu sinni lið Áramnns/Þróttar. Þetta verður erfiður leikur. A/Þ er með feykilega skemmtilegt lið og með frábæran kana innanborð sem nýlega vann troðslukeppni stjörnuleiks KKÍ. Við skorum á alla brottflutta Vestfirðinga að fjölmenna á leikinn sem verðir kl 19.15 í Laugardalshöll.
Áfram KFÍ







