Valmynd

þriðjudagurinn 8. júní 2010 | Körfuboltabúðir

Körfuboltabúðir KFÍ 2010: Minniboltanámskeið hafið

(Ljósm. Helgi Kr. Sigmundsson)
(Ljósm. Helgi Kr. Sigmundsson)
1 af 5

Það voru 12 hressir krakkar sem mættu á fyrstu æfinguna hjá minniboltanum í æfingabúðunum þetta árið.  Þetta er nýr hópur sem við vorum ekki með í fyrra sem er mjög góð viðbót.  Toni Radic tók á móti krökkunum ásamt Eggert Maríusyni.  Farið var yfir knattrak og fleiri undirstöðu þætti leiksins og boltameðferðar.  Í lokin var skipt í tvö lið og keppt í körfubolta, en til þess er auðvitað leikurinn gerður!  Þjálfarar eru á því að þessi aldurshópur sé ekki hvað síst spennandi og fagna því mjög að fá tækifæri til þess að vinna með þeim.  Skemmtileg fyrsta æfing og góð vika framundan.

Facebook

Leikir og atburðir

Næstu atburðir
Vefumsjón