8. flokkur drengja á Akureyri um síðustu helgi
Strákarnir í 8. flokki léku í D-riðli á Akureyri um síðustu helgi. Einn sigur vannst en 3 leikir töpuðust. Framfarir greinilegar hjá strákunum.
Leikur # 1
KFÍ-FSU 42-37
Okkar piltar byrjuðu betur og leiðum eftir fyrsta fjórðung 12-6. Svo kemur afleitur 2. fjórðungur, skorum ekki stig en brennum af 4 vítum, staðan í hálfleik 12-18. Sami munur hélst út 3. fjórðung en í þeim 4. fór barátta piltanna að skila árangri og breytum við stöðunni úr 21-28 í 32-30. Í kjölfar þess fáum við svo ótal sénsa til að vinna leikinn(nokkuð mörg víti) en leikur fer í framlegngingu, fyrsta framlenging sem þessir strákar taka þátt í. Framlenging reyndist síðan einstefna og vinnum við hana 10-4 og leikinn 42-37 og mikil gleði meðal KFÍ pilta enda fyrsti sigurinn í höfn. Það sem skilaði þessum sigri var gríðarmikil barátta og mikill sigurvilji hjá KFÍ strákunum, vorum miklu grimmari í fráköstum og öllum aðgerðum, góður og kærkominn sigur.
Stigin:
| Stig | Vítanýting | Þriggja stiga | |
| Helgi Bergsteinsson | 18 | 6-3 | 1 |
| Hákon Halldórsson | 16 | 12-3 | |
| Kjartan Guðnason | 3 | 1-1 | |
| Andri Skjaldarson | 3 | 1 | |
| Óskar Stefánsson | 2 | 6-0 |
Leikur#2
KFÍ-Sindri 21-46
Leikurinn byrjaði vel fyrir okkur, vorum yfir eftir fyrsta fjórðung 2-1! Leikur hinna miklu varna. Vorum svo undir í hálfleik 8-13. Þá fór hins vegar að halla verulega undan fæti og hrundi vörn og spilamennska hjá okkur í síðari hálfleik. Stigin:
| Stig | Vítanýting | Þriggja stiga | |
| Óskar Stefánsson | 12 | 2-0 | |
| Kjartan Guðnason | 3 | 1 | |
| Hákon Halldórsson | 2 | 2-0 | |
| Kolmar Halldórsson | 2 | ||
| Helgi Bergsteinsson | 2 |
Leikur #3
KFÍ-Þór 14-48
Þriji leikur okkar þennan daginn og var hann gegn besta liðinu Þórsurum. Skemmst er frá því að segja að þeir tóku okkur í kennslustund. Best að hafa sem fæst orð um þennan leik.
Stigin:
| Stig | Vítanýting | Þriggja stiga | |
| Helgi Bergsteinsson | 5 | 2-1 | |
| Sigurður Benediktsson | 4 | 4-2 | |
| Bernharð Överby | 3 | 4-1 | |
| Óskar Stefánsson | 2 | 2-0 | |
Leikur #4
KFÍ-ÍR 23-34
Þetta reyndist besti leikur okkar manna þó svo sigur hafi ekki unnist. Hér var spilað gegn sterkum ÍR-ingum og sýndu strákarnir fína spilamennsku og vorum við vel inni í leiknum lengst af en svo skildi að í restina. Í þessu leik sýndu strákarnir hvað þeir geta. Gott að enda mótið með svona góðum leik og nú er bara að byggja ofan á þessa reynslu og koma enn sterkari til leiks í næsta mót.
stigin:
| Stig | Vítanýting | Þriggja stiga | |
| Helgi Bergsteinsson | 8 | 2-1 | 1 |
| Hákon Halldórsson | 4 | 8-2 | |
| Óskar Stefánsson | 3 | 2-1 | |
| Sigurður Benediktsson | 2 | ||
| Kolmar Halldórsson | 2 | ||
| Kjartan Guðnason | 2 | ||
| Andri Skjaldarson | 2 | ||
Einn sigur uppskeran í mótinu og framfarir greinilegar. Mikill vilji og barátta einkenndi liðið og leiðin liggur bara upp á við hjá þessum strákum.







