mánudagurinn 29. mars 2010 | Ýmislegt
2 á 2 páskaeggjamót KFÍ og Nóa Siríus
Stefnt er að keppni í eftirfarandi flokkum
16 ára og eldri karla
16 ára og eldri kvenna
13-15 ára drengir
13-15 ára stúlkur
Minnibolti 10-12 ára
Minnibolti yngri ( 9 ára og yngri)
Mótstjórn hefur óskorðað vald til breytinga á flokkum, fer eftir skráningum hvernig endanleg skipting verður.
Í elsta flokki er óheimilt að manna lið 2 meistaraflokksmönnum, meistaraflokksmaður telst sá sem spilaði 3 eða fleiri leiki með meistaraflokki í vetur.
Spilað í 5 mínútur, sóknin dæmir. Lið skiptast á að vera í sókn(ekki make it take it). Verði lið jöfn í leikslok þá ráðast úrslit í vítakeppni.
Þátttökugjaldið er kr. 1.000 pr. mann í flokki 16 ára og eldri en kr. 500 í yngri flokkum. Iðkendur Í KFÍ þurfa ekki að greiða þátttökugjald.







