10. flokkur stúlkna - Öruggur sigur gegn Breiðablik
Mjög öruggur sigur hjá okkur stúlkum sem áttu fínan leik. Í byrjun benti fátt til annars en að um hörkuleik yrði að ræða, jafnt á flestum tölum og staðan eftir fyrsta fjórðung 13-11 KFÍ í vil. Breiðablik vill væntanlega gleyma næstu tveimur fjórðungum en þá vinnum við samanlagt 38-9. Staðn í lok þriðja fjórðungs 51-20 fyrir KfÍ og leikur í raun búinn. KFÍ slakar á í 4. fjórðung og Breiðablik nær aðeins að bjarga andlitinu með góðum kafla og lokatölur 55-31.
Leikur þessi var liður í fyrsta fjölliðamóti sem haldið var hér fyrir 2 vikum en Breiðablik komst þá ekki vegna veikinda. Þær mættu ekki nema 5 hingað vestur sem gerði okkur verkefnið auðveldara en það verður ekki tekið frá okkar stúlkum að þær áttu frábæran leik og fyrsti sigurinn gegn Breiðabliki staðreynd.
Stigin
| Leikmaður | Stig | Vítanýting | Þriggja |
| Sunna Sturluóttir | 24 | 1-1 | 3 |
| Eva Margrét Kristjánsdóttir | 11 | ||
| Guðlaug Sigurðardóttir | 8 | ||
| Vera Óðinsdóttir | 6 | 1-0 | |
| Heiðdís Magnúsdóttir | 4 | ||
| Dagbjört Sunna Elvarsdóttir | 2 |







